Þetta er Ein-Tak tækniþjónusta.
Tækniþjónusta og ráðgjöf í yfir 40 ár. Bjarni Axelsson lauk B. Sc. prófi frá tækniskólanum í Þrándheimi árið 1970. Hann hefur lengst af starfað við hönnunar og ráðgjafarstörf á eigin stofu. Bjarni var framkvæmdastjóri hjá innflutnings- og verktakafyrirtækinu Fagtúni frá stofnun þess árið 1980. Bjarni er einnig stofnandi og annar eiganda verktaka- og innflutningsfyrirtækisins Kímu ehf.
